# Örplast í andrúmsloftinu við vindmyllur ![Screenshot 2024-06-19 092727](https://hackmd.io/_uploads/B1maNQx80.png) [Mynd: faktisk.no](https://www.faktisk.no/artikler/z5x7g/dette-vet-vi-om-mikroplast-fra-vindturbiner). Slit á vindmylluspaða. Plastfjölliðan í hvíta ytra laginu er líklega pólíúretan sem hylur græna epoxy-efnið í spaðanum ([heimild](https://docs.wind-watch.org/Leading-Edge-erosion-and-pollution-from-wind-turbine-blades_5_july_English.pdf)). ## Tvær megin aðferðir eru **passíf** og **aktíf** sýnataka

Passíf sýnataka (gildrur)

Safna ögnum sem falla til úr andrúmsloftinu í gildrur sem standa úti í lengri tíma (1 mánuð til dæmis).

Dæmi á mynd: iNNOVATION nilu (pdf)

Kostir:

Lágur kostnaður

Einföld uppsetning

Ekkert rafmagn

Ókostir:

Háð veðri, vindum og úrkomu.

Segir ekkert um magn á rúmmálseiningu

Aktíf sýnataka (mælir)

Sýni úr andrúmsloftinu dregið inn um filtera sem agnirnar safnast á yfir stuttan tíma (24 klst. til dæmis).

Dæmi á mynd: MiniVol TAS Portable Air Sampler

Kostir:

Þekkt rúmmál lofts fer um tækið

Hægt að bera saman við veðurgögn

Ókostir:

Þarfnast rafmagns (batterí)

Krefst viðhalds og stillingar (calibration)

stuttur sýnatökutími

### Samanburður aðferða (passíf og aktíf sýni úr andrúmslofti) Passíf sýnataka með gildrum hentar vel fjarri byggð þar sem hægt er að skilja gildrurnar eftir í nokkrar vikur áður en safnað er úr þeim. Þær krefjast ekki mikils af manni þegar þær eru komnar upp og geta safnað í nokkrar vikur áður en þær eru tæmdar. Þær eru ódýr og einfaldur kostur. Aktíf sýnataka hentar vel til að fá nákvæmar mælingar yfir styttra tímabil. Þekkt rúmmál er dregið í gegnum síur sem grípa svifagnir úr andrúmsloftinu og hægt er að tengja gögnin við veðurfarsgögn á svæðinu. Passíf sýnataka gefur til kynna niðurfellingartíðni (fjöldi agna á fermetra yfir gefið tímabil), á meðan aktíf sýnataka fangar svifagnir (agnir á rúmmálseiningu). Saman myndu þessar aðferðir tryggja ítarlega greiningu á innihaldi örplasts í andrúmsloftinu á svæðinu. Þar sem sýnatökusvæðið er fjarri byggð teljum við að einfaldar aðferðir séu hentugar þar sem þær krefjast minni viðveru. Á meðan gildrurnar eru tæmdar eru ### Staðsetning gildra Agnir frá vindmyllum eru smá brot og flögur sem brotna af vegna flögnunar og eru því líklegar til að þeytast af spöðunum með miðflóttaaflinu eða skolast af þeim með rigningu. Þessar agnir verða til við árekstur spaðanna við úrkomu og vind þegar þeir eru á hvað mestri ferð og því ætti örplastmengun að vera meiri yfir vetur en sumar. Þetta slit ágerist með tímanum þannig að örplastagnirnar eru færri við glænýjar vindmyllur en slitið vindur upp á sig eftir að það er hafið. ![Layout3](https://hackmd.io/_uploads/BkAkyad8C.png) *Staðsetning gildra innan skyggða svæðisins við vindmyllu sem áætlað er að rísi sunnan við Vaðöldu í miðju vindorkuverinu. Ein gildra á hverju lengdarbili 80 m, 120 m og 200 m* Þessar agnir berast styttra því stærri sem þær eru svo að mest magn þeirra ætti að vera alveg upp við vindmyllurnar. Þess vegna er gott að hafa passífar gildrur nærri vindmyllunum þar sem þær eiga að grípa stærri og þyngri agnir. Loftgæðamæli (aktíf sýnataka) má setja upp í sólarhring óháð áhrifa iðuvinda. Báðar týpurnar þurfa að vera staðsettar undan vindi sem er oftast SV-megin við vindmyllurnar miðað við vindarósirnar á vindaatlasi Veðurstofunnar. (Gott er að gera árstíðabundnar vindarósir úr staðbundnum mælingum því á sumrin eru landræn áhrif á vinda. Við eigum forrit til þess ef þið eruð með gögnin). **Passífar gildrur**: minnst 5 spaðalengdir frá vindmyllum (utan við mestu iðuáhrif) **Aktífur mælir**: upp við passífar gildrur **Jarðvegssýni**: 10 cm kjarnar teknir á bilinu 0, 1, 2 spaðalengdir frá vindmyllum --- ## Sýnatökuáætlun (vöktun) Jarðvegssýni verða tekin upp við gildrurnar árlega. **Fyrirkomulag með loftgæðamælinum (aktíf og passíf)**: Við mætum á staðinn og setjum loftgæðamælinn upp, passífar gildrur tæmdar og jarðvegssýni tekin. Daginn eftir er loftgæðamælirinn tekinn niður. **Fyrirkomulag án loftgæðamælis (passíf)** Við mætum á staðinn, passífar gildrur tæmdar og jarðvegssýni tekin. *Sýni verða tekin árlega eða tvisvar á ári (vetur og sumar). Tvær sýnatökur á ári eru áhugaverðar en kannski ekki nauðsynlegar. Jarðvegssýnin ættu að ná því sem fellur til hvort eð er* ## Úrvinnsla sýna Sýni eru hreinsuð á rannsóknarstofu BioPol og NNv með ensímaðferð ([sjá skýrslu BioPol](https://harkanatta.github.io/MPprotocol/comparison-of-enzymatic-purification-and-gesamp-protocol.html)) og greind í Raman litrófssjá í gömlu Nýsköpunarmiðstöinni. ## Kostnaðaráætlun Eftirfarandi áætlun miðast við þrjár passífar gildrur við eina vindmyllu og eina aktífa gildru og eina passífa gildru á viðmiðunarsvæði. **Upphafskostnaður: 2.100.000 kr Árleg vöktun: 1.800.000 kr** Þegar ákveðið verður hvort leið 1, 2 eða 3 verður farin í uppsetningu vindorkuversins munum við útvíkka sýnatökurnar. Kostnaðurinn breytist þá af því leyti að: - hvert auka sýni kostar 50.000-60.000 í hreinsun og greiningu - aukaferðir til að setja upp gildrur og tæma - Kaup á fleiri gildrum | Uppsetning upphafleg | | | | | | | | |--------------------------------|---------|-------|----------------|---------|----------------|-----------------|-----------------| | | Mannafli| Dagar | Stundir pr. dag| Akstur km| Fjöldi Eininga | eininga verð | Heildarupphæð, kr.| | Undirbúningur Sérfræðingur | 1 | 2 | 8 | | 16 | 17.5 | 280 | | Uppsetning Sérfræðingur | 2 | 1 | 10 | | 20 | 17.5 | 350 | | Ferðatími Sérfræðingur | 2 | 1 | 8 | | 16 | 17.5 | 280 | | Akstur | | | | 800 | | 0.141 | 112.8 | | Dagpeningar | 2 | 1 | | | | 15.9 | 31.8 | | Dagpeningar | 2 | 1 | | | | 38.5 | 77 | | Gildrur (passífar) | | | | | 4 | 100 | 400 | | Gildrur (aktífar) | | | | | 1 | 600 | 600 | | Samtals | | | | | | | 2132 | ## Árleg vöktun: | Uppsetning | | | | | | | | |--------------------------------|---------|-------|----------------|---------|----------------|-----------------|-----------------| | | Mannafli| Dagar | Stundir pr. dag| Akstur km| Fjöldi Eininga | eininga verð | Heildarupphæð, kr.| | Undirbúningur Sérfræðingur | 1 | 1 | 4 | | 4 | 17.5 | 70 | | Uppsetning Sérfræðingur | 2 | 1 | 4 | | 4 | 17.5 | 70 | | Ferðatími Sérfræðingur | 2 | 1 | 8 | | 16 | 17.5 | 280 | | Akstur | | | | 800 | | 0.141 | 112.8 | | Dagpeningar | 2 | 1 | | | | 15.9 | 31.8 | | Dagpeningar | 2 | 1 | | | | 38.5 | 77 | | Samtals | | | | | | | 641.6 | | Úrvinnsla sýna | | | | | | | | |--------------------------------|---------|-------|----------------|---------|----------------|-----------------|-----------------| | | Mannafli | Dagar | Stundir pr. dag | Akstur km | Fjöldi Eininga | eininga verð | Heildarupphæð, kr. || | Undirbúningur Sérfræðingur | 1 | 1 | 4 | | 4 | 17.5 | 70 | | hreinsun sýna | | | | | 6 | 30 | 180 | | greining sýna | | | | | 6 | 30 | 180 | | Jarðvegssýni | | | | | 4 | 100 | 400 | | Ferðatími Sérfræðingur | 1 | 1 | 6 | | | 17.5 | 105 | | Akstur | | | | 600 | | 0.141 | 84.6 | | Dagpeningar | 1 | 2 | | | | 38.5 | 77 | | Gagnagreining | 1 | 4 | 8 | | 32 | 17.5 | 560 | | Samtals | | | | | | | 1166.6 |