Vettvangsferð í æðarvarpið á Skagaströnd
===
###### tags: `NNV` `BioPol` `Æðarfugl` `Náttúruklúbbur`
:::info
- **Dagsetning:** 28. maí, 2021, 14:00-16:00
1. Gerð feltbókar `20 mín`
2. Eggjatalning í æðarvarpi `60 mín`
4. Skoðun í smásjá `40 mín`
- **Þátttakendur:**
- strákar (10, 10, 11, 13)
- stelpur (10, 10, 12)
- **Umsjón:**
> [name=Valtýr] [name=Cécile]
:::
# [Myndir :camera:](https://hackmd.io/@Valtyr/Hk5bp1Ssu#/) :point_left:
<div style="width: 100%"><iframe src="https://www.google.com/maps/d/u/0/embed?mid=1m9-ICoz8VOtofrPIH1aX3mKXmD9o_2XI" width="640" height="480"></iframe></div>
## :notebook: Feltbók
- Gerð feltbókar
- Efni:
- Litir
- Pennar og blýantar
- *Kápa*: götuð blöð í litum A4
- *Innvols*: hvít götuð blöð A4
- Stuttir garn-spottar
- <img src="https://i.imgur.com/1rARSHj.jpg" alt="drawing" width="50%"/>
- Aðferðir:
- Takið eitt litað blað og tvö hvít, setjið þau saman, brjótið saman í miðjunni og hnýtið hnút svo úr verður bók. Garnspottarnir verða að vera nógu langir til að hægt sé að hnýta hnút með þeim.
- Skrifið titil bókarinnar og nafn á forsíðu. Skreytið með lýsandi mynd.
- Gerið töflu í bókina:
- |Hreiður |Egg|
|-----|--------|
|1| |
|2 | |
|3 | |
|4 | |
|5 | |
:egg: Eggjatalning
---
- Efni
- Feltbók
- Blýantar
- Kíkir (ef mögulegt)
- Stækkunargler (ef mögulegt)
- Aðferðir
- Gengið um æðarvarpið í þéttum hóp. Þetta er mikilvægt vegna þess að ef hópurinn er dreifður um varpið eru mörg hreiður varnarlaus sem gefur vörgum tækifæri til að ræna þau.
- Þegar hópurinn gengur fram á hreiður skráir einn krakki hjá sér fjölda eggja. Hver krakki fær allt að fimm hreiður og best að dreifa þeim svo allir séu sem jafnastir en ekki þannig að einn sé búinn að skrá hjá sér langt á undan öðrum.
- Hvert hreiður er merkt inn á kort með GPS-punkti og fjölda eggja.
- Krakkarnir fá að skoða eggin, handleika bæði þau ásamt dúninum.
- Hægt er að skoða eggin nánar með stækkunargleri.
:microscope: Víðsjá
---
- Efni
- Víðsjá (e. stereo microscope)
- Áhugaverðir hlutir hlutir úr varpinu að skoða (Fjaðrir, hár, eggjaskurn, bein og fleira).
- Aðferðir
- Skoða í víðsjánni hvernig hinir ýmsu hlutir líta út í mikilli stækkun.
:star2: Hvað gekk vel og hvað hefði betur mátt fara?
---
### Hvað gekk vel :triumph:
- Börnunum þátti áhugavert að skoða eggin í návígi
- Það var gaman að skoða hreiður og egg
- Það var áhugavert að sjá muninn á fjölda eggja í hreiðrum
- Krakkarnir voru áhugasamir um ýmislegt í tengslum við æðarfuglinn
- Hvernig æðarbóndinn ver varpið
- Egg og hreiður annara fugla (máfa og grágæsa)
- Fjaðrir, bein af dýrum sem urðu á vegi okkar
### Hvað mátti betur fara? :poop:
- Það hefði mátt útskýra betur fyrir krökkunum áður en við fórum af stað af hverju nauðsynlegt er að vera í þéttum hóp. Það blossaði upp keppnisskap í sumum sem vildu æða áfram og finna næstu hreiður á meðan enn var verið að skrá niður og skoða hreiðrið á undan.